Þetta er vefsíðan okkar. Við bjuggum hana til svo að við kæmum svefn verkefninu okkur á framfæri. Eins og í öllum vel unnum verkefnum liggur mikil vinna á bakvið ferlið og er þetta verkefni engin undantekning. Síðustu vikur höfum við verið að vinna að þessu verkefni og það hefur gengið mjög vel. Hugmyndin kviknaði bara upp úr þurru þegar við fórum að hugsa um hvað gæti verið gaman og gagnlegt að vinna í lokaverkefninu. Mist kom þá með hugmynd að gera um svefn þar sem hann er einn mikilvægasti þáttur í heilsu fólks. Þar sem við höfum allar áhuga á heilsu þá var þetta alveg tilvalið. Hugmyndin hefur þróast mikið frá upprunalegu hugmyndinni þegar við áttuðum okkur á því að það yrði mjög skemmtilegt að gera litlar rannsóknir á okkur sem myndu endurspegla stærri rannsóknir sem hafa verið gerðar af vísindamönnum um svefn. Við hófumst handa og byrjuðum á því að búa til rannsóknarspurningu sem er, Hversu mikilvægur er svefn og hvaða áhrif hefur svefnleysi?. Við unnum útfrá aðal rannsóknarspurningunni og til urðu fleiri litlar spurningar sem við unnum einnig útfrá.