Hreyfing auk svefns eru mikilvægir áhrifaþættir heilsufars. Reglubundin hreyfing hefur góð áhrif á svefn. Það er ekki æskilegt að æfa mikla þolþjálfun rétt fyrir svefninn þar sem það tekur tíma fyrir líkaman að ná sér niður eftir mikla hreyfingu. Margir kjósa að byrja daginn á því að hreyfa sig sem getur verið jákvætt en mikilvægt er þá að fara fyrr að sofa og fórna ekki svefninum fyrir morgunæfinguna. Rannsóknir hafa sýnt að íþróttamenn gætu bætt árangur sinn með því að lengja svefn tímann sinn.