Svefnþörf er mismunandi eftir aldri og það er misjafnt hvernig fólk ræður við svefnleysi. Flestir sem hafa vakið samfleytt í sólahring vita hversu vond áhrif það hefur á skap og einbeitingu. Við fengum að finna fyrir því þegar við ákváðum að vaka í 24klst til að kanna áhrif og skapsveiflur okkar við svefnleysi. Markmið þessarar rannsóknar er að sjá hvort einbeiting, skap og viðbragðsflýti breytist. Fleiri hafa gert slíkar rannsóknir og þó svo afleiðingarnar séu ólíkar hafa þær allar sameiginlegt að einbeiting, minni og skapið breytist mjög fram eftir nóttu á slæman hátt. Ein af tilraununum sem við tókum á okkur var að vaka í 24 tíma sem hafði mjög ólík áhrif á Þóreyju og Tinnu. Eftir miðnætti drakk Tinna Nocco sem er orkudrykkur sem inniheldur 105mg koffín. Einnig drakk hún kaffibolla sem inniheldur u.þ.b. 100mg koffín. Samtals um kvöldið drakk Tinna 205mg koffín. Þórey drakk ekkert koffín um kvöldið. Nóttin byrjaði mjög skemmtilega og við náðum að gera mjög margt við tókum t.d til í herberginu hennar Tinnu og bjuggum til lag. Um 04:30 byrjaði Þórey að finna fyrir mikilli þreytu og vanlíðan en þá hafði hún verið vakandi í 21 klukkutíma. Tinna byrjaði hins vegar að finna fyrir þreytu tveimur tímum á eftir Þóreyju eða um hálf 7 leitið. Þreytan lýsti sér þannig hjá þeim báðum að þær byrjuðu smátt og smátt að detta út í nokkrar sek. Einkenni Þóreyjar vora þannig að hún fékk mikinn höfuðverk og mikilli ógleði. Svefnleysið hafði ekki jafn mikil áhrif á Tinnu fyrr en datt um morgun og hún varð ekki jafn þreytt yfir nóttina, það gæti verið að koffínið hafi haft áhrif. En orkudrykkir hafa örvandi áhrif sem getur verið ástæðan fyrir því að Þórey hafi fundið fyrir meiri þreytu en Tinna. Líðan Tinnu Eftir að Tinna hafði vakið í 24 klukkustundir var hún mjög þreytt. Hún svaf frá c.a 08:30 til 13:00 og til mikillar furðu átti hún erfitt með að sofna um kvöldið, þrátt fyrir lítinn svefn. Hún átti erfitt að með að sjá og sá í tvöföldu, Tinna var í smá rugli yfir daginn og þurfti verulega að passa sig að missa ekki stjórn á sér. Tinna fékk að finna fyrir mikilli þreytu daginn eftir og var þreytt alla helgina. Líðan Þóreyjar Þórey var mjög mjög mjög þreytt. Hún svaf frá 8:00 – 13:00 en þegar hún vaknaði varð hún ekkert þreytt og leið eins og hún hafði fengið fullan nætursvefn. Þegar leið á daginn styttist samt þráðurinn og hún varð pirruð yfir minnstu hlutum. Hún tók einn blund yfir daginn í 40 mínútur sem gerði mikið fyrir hana og gerði það að verkum að hún náði að halda út kvöldið og horfa á eurovision. Hún er enn að ná upp nætursvefninum og koma sér í rútínu aftur.
Við fengum þær niðurstöður úr svefnleysis könnuninni að, minni bæði Þóreyjar og Tinnu varð verra, Það tók Tinnu þegar hún hafði náð fullum nætursvefn 1:41 að klára minnisspil en þegar hún hafði ekkert sofið var tímin 02:31. Tinna var þá 49 sek lengur með minnisspilið þegar hún hafði ekkert sofið. Tinna tók síðan viðbragðsflýti próf. Það var þannig að Mist lét penna falla og Þær áttu að reyna að grípa. Tinna náði að grípa í bæði skiptin, sem segir okkur að svefnleysið hafði ekki áhrif á viðbragð Tinnu. Þórey gerði einnig minnisprófið og það tók hana 1:33, þegar hún var út sofin. Það tók hana 2:53 þegar hún var ekkert búin að sofa. Þannig það tók hana 80 fleiri sek að taka minnisspilið þegar hún var ekkert búin að sofa. Það var munur á viðbragðsflýti Þóreyjar eftir að hún var búin að sofa og ekki þar sem hún náði ekki að grípa þegar hún var ekkert búin að sofa.