Á unglingsárunum verða kröfur í námi og heimanám aukin frá yngri árunum. Tíminn sem fer í nám verður meiri þ.e. við tökum meiri tíma í að læra fyrir próf. Það að ganga vel í námi krefst einbeitingar og við sáum fram á það að svefnleysi hefur gífurleg áhrif á einbeitinguna. (slæm/góð). Við lögðum fyrir stutta könnun á 7.bekk og 10.bekk, um samhæfingu svefns og náms.Það kom okkur á óvart að í 10.bekk voru fleiri eða 58% sem kusuað læra fram á nótt en það voru aðeins 42% sem kusu að fá fullan nætursvefn. Í 7.bekk voru þó 72% sem kusu að fá fullan nætursvefn en aðeins 28% sem vilja læra langt fram á nótt. Í 10.bekk er miklu meira álag og miklu meira í húfi en hjá 7.bekk. Hjá nemendum í 10.bekk er mikið að gera með tómstundir, félagslíf og auðvitað nám og svefn er kannski ekki efst í huga þeirra. Þó er mjög mikilvægt og við ráðleggjum ykkur að ef þið hafið möguleika þá að læra frekar yfir daginnog fara snemma að sofa og koma þá fersk í prófið.